UNDIRBÚNINGUR
Dagur 1
Fylltum út hugarkortið og svöruðum spurningum um verkferli lokaverkefnisins. Kláruðum tékklistann, ræddum umfjöllunarefni og settum upp heimasíðu. Við sömdum síðan spurningar fyrir viðtöl og fengum tölu yfir sundlaugar á Íslandi í gegnum Wikipediu. Við komumst yfir allt sem við ætluðum okkur í dag og jafnvel meira. Virkni hópsins var fín og engin vandamál komu upp. Við reyndum að skipuleggja morgundaginn eins vel og við gátum og við erum nokkuð vissar hvað við ætlum að nýta næstu daga í. #godvinna #ekkertmal #baun