ÍSLANDSKORT
- Hjördís Birna
- May 30, 2016
- 1 min read
Dagur 11
Í dag er fyrsti dagurinn í síðustu viku verkefnisins. Það er enn margt sem við eigum eftir að gera en við vorum mjög duglegar í dag. Magdalena var að þýða heimasíðuna yfir á pólsku og Hjördís vann mikið í Prezi kynningunni á meðan Sóley og Bára byrjuðu að búa til Íslandskortið og merkja inn sundlaugarnar. í sameiningu kláruðum við svo kortið og það lítur mjög vel út. Á morgun höldum við svo litla kynningu fyrir Kjartan.

コメント