top of page

PRUFUKYNNING

Dagur 12

Í dag héldum við áfram með Prezi-kynninguna, við fundum myndir og settum þær inn og kláruðum að skipuleggja textann. Við fórum heim til Hjördísar og völdum þau myndbönd sem við ætlum að nota í kynninguna okkar og settum þau svo inn á Youtube. Við áttum að halda kynningu fyrir Kjartan en þar sem hann var ekki í dag var kynningin haldin fyrir Guðrúnu. Guðrún fór með okkur yfir nokkur atriði sem gott væri að leiðrétta og munum við breyta þeim á morgun. Okkur fannst spjaldið sem við gerðum í gær af Íslandi svo tómlegt að við ákváðum að mála Ísland svart. Áætlun morgundagsins er að hitta arkítekt og halda svo áfram með kynninguna (helst klára hana) og hugsa svo meira út í útlit bássins.


LÆRDÓMSRÁÐ OKKAR

#1 

Vinna vel, vera metnaðarfullur og vanda sig.

 

#2

Taka reglulegar lærdómspásur (þó ekki of langar).

 

#3

Borða, borða og borða (og drekka vatn).

bottom of page