top of page

LOKASPRETTUR

Dagur 14 í dag skiptum við með okkur verkum til þess að klára sem mest. Bára var á fullu að vinna í Prezi, Sóley var að búa til bækling og Magdalena og Hjördís voru að skipuleggja og skreyta básinn. Við höfum lokið við Prezi kynninguna og erum hæst ánægðar með það. Básinn lítur einnig einstaklega vel út. Eftir þó nokkur símtöl til margra aðila náðum við loks að redda gömlum sundfötum til sýnis á básinn. Kjartan fór með okkur yfir kynninguna og leiðrétti það sem þurfti svo nú er hún mjög flott. Morgundagurinn fer í lokaskipulagningar og æfingar. #steypa #vantarblátt #hringduíþennan


LÆRDÓMSRÁÐ OKKAR

#1 

Vinna vel, vera metnaðarfullur og vanda sig.

 

#2

Taka reglulegar lærdómspásur (þó ekki of langar).

 

#3

Borða, borða og borða (og drekka vatn).

bottom of page