top of page

SKIPULAGNINGAR

Dagur 15 Dagurinn í dag var einstaklega góður og veðrið yndislegt. Við prufukynntum verkefnið okkar og það gekk vel. Mamma hennar Sóleyjar sótti gömlu sundfötin fyrir okkur. Þau eru nokkuð yngri en við héldum enda bara frá 90' en þrátt fyrir það eru þau flott og við notfærum okkur þau fyrir básinn okkar. Við hengdum loksins upp Íslandskortið og básinn lítur betur út með hverri lagfæringu. Við erum spenntar fyrir mánudeginum og hlökkum til að ljúka verkefninu. #geirmundur #leynikistan #jólasnjórinn


LÆRDÓMSRÁÐ OKKAR

#1 

Vinna vel, vera metnaðarfullur og vanda sig.

 

#2

Taka reglulegar lærdómspásur (þó ekki of langar).

 

#3

Borða, borða og borða (og drekka vatn).

bottom of page